Roma okkar sjá https://www.skotis.is/hundarnir/roma er staðfest hvolpafull með Brandson sjá https://www.skotis.is/hundarnir/brandson-gloi.
Gotið er væntanlegt í lok júlí og ef allt gengur vel þá geta hvolpar verið til afhendingar um miðjan sept.
Nú eru um þrjú ár síðan við vorum með síðasta got og svo vildi til að þær voru tilbúnar á sama tíma. Ákváðum eftir nokkra umhugsun að para þær báðar. Við tökum þetta því með "trukki" í sumar :-)